Skilmálar

UPPLÝSINGAR UM SELJANDA

Seljandi er Altunga ehf, kt. 670204-2270, Hæðarseli 14, 109 Reykjavík. 
Kretakotta.is er netverslun sem selur vandaða, handgerða keramik potta og ker sem framleiddir á Krít. Slóð netverslunarinnar er www.kretakotta.is.
Kretakotta.is býður upp á fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu, sé verslað fyrir kr. 20 þúsund eða meira. 
Þú velur vöru, setur í körfu, velur greiðslufyrirkomulag og pöntunin er afgreidd um leið og greiðsla hefur borist. Í kjölfarið færðu kvittun fyrir vörukaupunum í tölvupósti og þar með er kominn á samningur á milli þín og kretakotta.is.
Sé vara uppseld verður haft samband við þig hið fyrsta og þér boðin önnur vara eða full endurgreiðsla.
Það tekur í flestum tilvikum 0-3 daga að fá vöruna í hendurnar eftir að pöntun er móttekin, en pantanir eru þó að jafnaði ekki sendar út um helgar.
  

VERÐ

Öll verð í netverslun eru með 24% virðisaukaskatti (VSK). Vinsamlegast athugaðu að verð í netverslun geta breyst án fyrirvara, vegna rangra verðupplýsinga eða prentvillna.
 

GREIÐSLUMÁTAR

Á kretakotta.is er boðið er upp á að greiða með greiðslukorti, Netgíró, Pei eða millifærslu.  Hægt er að greiða með greiðslukortum frá Visa og Mastercard í gegnum örugga greiðslugátt frá Rapyd á Íslandi.

SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR

Kaupandi hefur 14 daga til þess að hætta við kaup og er vara endurgreidd að fullu ef neðangreind skilyrði eru uppfyllt:
• Varan skal vera ónotuð.
• Vara skal vera í söluhæfu ástandi.
• Greiðslukvittun þarf að fylgja með sendingunni.
• 14 daga endurgreiðslufrestur hefst þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.
Endursending vöru er á ábyrgð og kostnað kaupanda nema hann hafi fengið ranga eða skemmda vöru afhenta.
 

TRÚNAÐUR

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
 

VARNARÞING

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.
 

HAFA SAMBAND

Velkomið er að hafa samband í gegnum netfangið kretakotta@kretakotta.is eða í síma 791-9931 ef einhverjar spurningar vakna.